Á döfinni


Myndlistarsýningin Strandaðir skógar,

 Hólmakaffi, Hólmavík 

 

 

[SEE ENGLISH TRANSLATION BELOW] 

Myndlistarmennirnir Fiete Stolte og Timo Klöppel sýna verk sín í Hólmakaffi.  Sýningin verður opnuð þriðjudag 24. ágúst kl. 17. Hún er hluti af

verkefni Þjóðfræðistofu sem snýr að þjóðfræði og menningarsögu rekaviðs.   

 Sjá nánar

 

 

Art exhibition: Stranded Forest

 at Hólmakaffi, Hólmavík 

 

The Berlin-based Fiete Stolte and Timo Klöppel exhibit there works at Hólmakaffi. The exhibition opens Tuesday 24. August at 5pm. It is part of project run by the Icelandic Centre for Ethnology and Folklore that studies the folklore and cultural history of driftwood.

 See more

 


 ------------------------------------------------------------

 

Málþing: Að grína í samfélagið

 

[SEE ENGLISH TRANSLATION BELOW]

 

Í tengslum við sýningu Hafnarborgar “Að drekka mjólk og elta fólk” stendur Þjóðfræðistofa fyrir málþingi um húmor sem samfélagsrýni og valdatæki.  Þar munu fræði- og listamenn stíga á stokk og varpa ljósi á hinar ýmsu birtingarmyndir húmors í menningar- og samfélagslegu samhengi.

 

 

 

Á málþinginu “Að grína í samfélagið” verður rýnt í hin ýmsu form húmors, svo sem uppistand, háðsádeilur og leikræna íroníu.  Fjallað verður um húmor sem tæki í samfélagsrýni og valdabaráttu þjóðfélagshópa og tekin dæmi úr menningar-  og hversdagslífi sem liggja á mörkum lista og leikhúss.

 

Á meðal þátttakenda eru

 

Kristinn Schram, forstöðumaður Þjóðfræðistofu

Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, sýningarstjóri

Ilmur Stefánsdóttir, myndlistarmaður

Sigurjón Baldur Hafsteinsson, lektor í safnafræði við Háskóla Íslands

Terry Gunnell, dósent í þjóðfræði við Háskóla Íslands

Kristín Einarsdóttir, aðjúnkt við Háskóla Íslands

Þorsteinn Guðmundsson leikari

 

Málþingið fer fram 25. september kl. 15 í Hafnarborg   

 

Sjá nánar 

 

IN ENGLISH

 

Symposium: A Poke at Society

 

Following the opening of the Hafnarborg exhibition “Að drekka mjólk og elta fólk” the Icelandic Centre for Ethnology and Folklore will host a symposium on humour as social commentary and a means of power. Scholars and artists will shed light on the various forms of humour in a cultural and social context.

 

 

 

Participants include:

 

Kristinn Schram, director of the Icelandic Centre for Ethnology and Folklore

Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, curator, Hafnarborg

Ilmur Stefánsdóttir, artist

Sigurjón Baldur Hafsteinsson, lecturer, University of Iceland

Terry Gunnell, professor, University of Iceland

Kristín Einarsdóttir, adjunct, University of Iceland

Þorsteinn Guðmundsson, actor

The symposium takes place in Hafnarborg the 25th of December 2010, at 15:00

 See more

 

 

Háskólanemar setja svip sinn á sumarstarfið


Þjóðfræðistofa tekur á móti fjórum þjóðfræðinemum í sumar til að stunda rannsóknir og skriftir, meðal annars á matarmenningu og Íslendingum erlendis.  Nemendurnir eru misjafnlega á veg komnir: Ein á BA-stigi, tvö á mastersstigi og einn verðandi doktor. Þá mun Þorbjörg Matthíasdóttir, BA nemi í ensku, vinna að þýðingum á íslenskum þjóðsögum frá Ströndum. Verkefni þessi eru meðal annars styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Af öðrum góðum gestum má nefna Brian Berg, ljósmyndara, sem vinnur með Þjóðfræðistofu að bók um reka og þjóðfræði fjörunnar og Joonas Ahola, þjóðfræðing, sem vinnur að lokagerð heimildamyndarinnar Leitin að Gísla Suurinpojka.  Þess má geta að ljósmyndasýning Brian Berg, Réttir, stendur uppi í sumar á Sauðfjársetrinu. 
 

Liðnir viðburðir: 

 

 

Þjóðfræðingar fagna sumarkomu

 

Að kvöldi sumardagsins fyrsta, þann 22. Apríl næstkomandi, bjóða Þjóðfræðistofa og Félag Þjóðfræðinga til  kvöldvöku í Sögufélagshúsinu við Fishersund. Þar munu þau Tiber Falzett og Dr. Giulia De Gasperi frá Edinborgarháskóla flytja um rannsóknarefni sín.

Meira

 

 

Skoskættuð tónlistaruppákoma á Café Riis

 

 

Þjóðfræðistofa stendur fyrir skoskættaðri tónlistaruppákomu á Café Riis á Hólmavík, þriðjudaginn 20. apríl kl. 20, þar sem leikið verður á sekkjapípu og sagt frá þeim tónlistararfi sem tengist hljóðfærinu. Sekkjapípan hefur um langt skeið verið danshljóðfæri geilískumælandi manna í Skotlandi og meðal innflytjenda í Cape Breton og víðar.  Tiber Falzett þjóðfræðingur frá Edinborgarháskóla hefur hljóðritað og rannsakað þessa tónlistarhefð jafnt í segulbandasöfnum sem lifandi flutningi. Tiber mun gefa hljóðdæmi og túlka ýmsar tegundir þessarar tónlistar, svo sem jig, strathspey og reel, á endurgerðri átjandu aldar sekkjapípu. Hljóðfæraleikarar og áhugamenn um skoska eða írska tónlistarhefð eru hvattir til að hafa með sér hljóðfærin.

Frekari upplýsingar í síma 8661940
 
 
Fyrirlestraröð um ímyndir og sjálfsmyndir
 
Í samstarfi við Háskólann á Bifröst   
Fimmti fyrirlesturinn verður haldinn í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121, frá
kl. 12:00 -13:30
 
föstudaginn 9. apríl í fyrirlestrarsal á 4. hæð.
 

Á vef Háskólans á Bifröst (www.bifrost.is) verður hægt að nálgast upptökur fyrirlestranna á meðan röðin stendur yfir.

Verkefnið  er stutt af Reykjavíkurborg




„Að hefjast í hærri stað og þaðan minnkast“. Um kotungshátt.

Viðar Hreinsson

 Meira

 

 

Húmorsþing 2010

 

Annað Húmorsþing Þjóðfræðistofu verður haldið laugardaginn 20. mars næstkomandi.  Húmorsþingið er bæði vetrarhátíð og málþing um húmor sem fræðilegt viðfangsefni. Það er nú haldið í annað sinn á Ströndum.

Á málþinginu munu fræðimenn stíga á stokk og varpa ljósi á nýjustu rannsóknir og miðlun á húmor.  Rætt verður um hin ýmsu form húmors, svo sem brandara, uppistand, satíru og íroníu ásamt margvíslegri iðkun þeirra í daglegu lífi. Fjallað verður um húmor sem valdatæki í baráttu þjóðfræðihópa og ýmsar birtingarmyndir húmors í fjölmiðlum. Nemendur í þjóðfræði eru sérstaklega velkomnir og stendur til boða að sitja málþingið og skrifa um það námsritgerð í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

 Um kvöldið verður boðið til skemmtunar en á boðstólnum verður meðal annars barþraut (pub quiz) um íslenska kímni, uppistand Uppistöðufélagins, Þorsteins Guðmundssonar og Helga Svavars Helgasonar. Auk þess verður í annað sinn efnt til brandarakeppninnar sívinsælu “Orðið er laust”.

  Sjá dagskrá og aðrar upplýsingar

 

 

 

 

 

ICEF presents Iceland and Images of the North at the University of Edinburgh, Feb. 19th 2010

(SEE ENGLISH BELOW)

 Þjóðfræðistofa heldur fyrirlestur í Edinborgarháskóla um Ísland og ímyndir Norðursins 19. febrúar 2010

 Kristinn Schram forstöðumaður Þjóðfræðistofu og Katla Kjartansdóttir verkefnastjóri munu fjalla um birtingarmyndir Norðursins og Íslendinga sem íbúa þess. Fyrirlesturinn tengist alþjóðlegu rannsóknarverkefni um efnið, sjá www.inor.is, og er flutt í fyrirlestraröð innan hug- og félagsvísindadeildar Edinborgarháskóla. Sjá meira

 

 

 

Kristinn Schram and Katla Kjartansdóttir, (Icelandic Centre for Ethnology and Folklore)

"Iceland and Images of the North"

Through the analysis of various representations of Iceland Katla and Kristinn look at the cultural role of ‘the North’ in the circumpolar world. This talk focuses on the practice and performance of such images in the present as well as their origins in the past. See more 

 

Postgraduate Courses in Strandir in the summer of 2010 /

Námskeið á framhaldsnámsstigi á Ströndum sumarið  2010

 

(SEE ENGLISH VERSION BELOW)

Þjóðfræðistofa, í samstarfi við Svartárkot, auglýsir nú tvö námskeið á framhaldsnámsstigi á Ströndum í sumar. Annað námskeiðið fjallar um íslenska þjóðfræði og nátturu og en hitt er þverfaglegt námskeið um ímyndir Norðursins.  Námskeiðin eru kennd á ensku og ætluð framhaldsnemum um allan heim/

 ICEF, in partnership with the Svartárkot Centre,  present two postgraduate courses in Strandir, Iceland this summer. One is about Icelandic Folklore and Nature the other is more multidisciplinary course on Images of the North.

             

 

 

Ísland og ímyndir Norðursins:

Fyrirlestrar um ímyndir og sjálfsmyndir

 

Fyrirlestrarnir verða haldnir í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121 frá 12:00 – 13:30 á föstudögum. Hinn 29. janúar flutti Guðmundur Oddur Magnússon  fyrsta fyrirlesturinn í nýrri röð INOR og ReykjavíkurAkademíunnar og nefndist fyrirlesturinn:

Táknmyndir þjóðarinnar - þá og nú.

 

Upptöku af fyrirlestrinum má nálgast hér. 
 
Meira

 

 

 

 

Gleðilegt ár 2010

Þjóðfræðistofa lauk árinu með ýmsum viðburðum tengdum jólunum. Auk Jólaspjallsins, þar sem fram komu fjölmargir þjóðfræðingar, tónlistarmenn og höfundar, má nefna söfnun jólaendurminninga og gerð Jóladagatals Strandagaldurs; Þá voru gestir frá Norðurlöndum fræddir um jólasiði á Íslandi og haldinn fyrirlestur um þjóðtrú jóla á Þrettándagleði á Ströndum. Framundan á nýju ári er fyrirhugaður fjöldi námskeiða á háskólastigi, símenntunar- og fjölskyldunámskeið; frumsýning heimildamyndar; útgáfa bóka um þjóðtrú, menningarsögu rekaviðs og ímyndir norðursins; rannsóknir á matarmenningu; og fjöldi málþinga og annarra viðburða. Má þar nefna Húmorsþing Þjóðfræðistofu sem haldið verður í byrjun mars. 

 

 

 

Jólaspjall Þjóðfræðistofu

Laugardaginn 19. desember , kl. 13, mun Þjóðfræðistofa blása til þjóðfræðiþings, útgáfuhófs og menningardagskrár. Auk þess að miðla af rannsóknum verður leikin tónlist, sýndar kvikmyndir og haldið upp á nýjar útgáfur.   Þá munu höfundar lesa upp úr nýútgefnum bókum.  Jólaspjallið verður haldið í Bragganum á Hólmavík en Café Riis býður upp á létt jólahlaðborð á vægu verði. Meira

 

 

Fjölmiðlaumfjöllun um rannsóknir Þjóðfræðistofu

 

Rannsóknir Þjóðfræðistofu á hefðum og ímyndum norðursins hafa vakið talsverða athygli fjölmiðla á dögunum.  Blaðamaður Pressunar fylgdist með fyrirlestri Kristins Schram “Að innbyrða útrásina” á ráðstefnunni Þjóðarspeglinum og fjallaði um hana. Smella má hér til að lesa. Af sama tilefni tók fréttaskýringaþátturinn Spegillinn viðtal við Kristinn og hafði sérstakan áhuga á hlutverki þorrablóta í íslensku útrásinni.  Viðtalið má heyra með því að smella hér.   Erindið var svo gefið út sem grein í ritinu Rannsóknir í Félagsvísindum X en eintak af því má nálgast hjá Þjóðfræðistofu og Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. Meira um rannsóknir

Þá var rætt við Jón Þór Pétursson þjóðfræðing í Samfélaginu í nærmynd um doktorsverkefni hans en hann starfar með Þjóðfræðistofu í rannsóknum á matarmenningu. Hlusta má á viðtalið hér

 

 

 

 

Samtímasöfnun – leikir barna

 

 

Nú stendur Þjóðfræðistofa fyrir samtímasöfnun um leiki barna í upphafi 21 aldar í samstarfi við fjöldamörg söfn á Íslandi. Markmiðið er að safna fróðleik um leiki barna, ásamt leikföngum og ljósmyndum. Söfnunin mun ná til nemenda í nokkrum 5. bekkjum víðsvegar um landið, þ.á.m. í Grunnskólanum á Hólmavík. Fyrirhugað er að kynna niðurstöður verkefnisins með útgáfu og sýningu sem sett verður upp hjá öllum stofnununum. Meira

 

 

 

 

 

 

 

Þjóðfræðistofa gefur út bókina Eve Online: Leikir, sköpun og samfélög

 

 Á félagsvísindaráðstefnunni Þjóðarspegillinn X mun þjóðfræðingurinn Óli Gneisti Sóleyjarson flytja fyrirlestur (kl. 15-17) um rannsókn sína á íslenska tölvuleiknum Eve Online en eftir hann er nú komin út bókin Eve Online: Leikir, sköpun og samfélög.

Aðalumfjöllunarefni bókarinnar eru samfélögin sem skapast í tölvuheimi Eve Online. Meira

 

 

 

 

Lífróðri útvarpað


 

Fyrri hluti málþings á vegum Þjóðfræðistofu og Hafnarborgar með heitinu Lífróður var fluttur á RÚV, þriðjudaginn 13. október 2009, kl. 20.30, í þættinum Í heyranda hljóði. Málþingið var haldið í Hafnarborg 5. september 2009. Hlusta 

Seinni hlutinn var fluttur 20. október, kl. 20.30. Hlusta.

Meira

Háskólastarf á Ströndum


 

Helgina 10. – 11. október munu þrjátíu erlendir nemendur stunda háskólanám á Ströndum.  Dvöl þeirra er hluti af námskeiði á vegum Þjóðfræðistofu og Háskóla Íslands um íslenska þjóðfræði.  Meira um það

 

 

Réttir

 Ljósmyndasýning Brian Berg

Sýningin Réttir opnar nú um helgina en hún samanstendur af verkum ljósmyndarans Brian Berg sem teknar eru í Skeljavíkurrétt og nágrenni haustið 2008.   Leiðarstef í verkum Brian eru tengsl sjálfsmyndar og lands en auk þess hefur hann lengi haft áhuga á sauðfé og á þann æskudraum óuppfylltan að gerast fjárhirðir. Sýningin er gerð í samstarfi Þjóðfræðistofu og Sauðfjársetursins og verður opnuð samhliða réttarkaffi í Sævangi á Ströndum sunnudaginn 20. september.  Meira um sýninguna og Brian Berg.

 

 

 

 

 

Lífróður – málþing um hafið í sjálfsmynd þjóðarinnar  

5. september kl. 13 – 15:30 í Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar

 
Í tengslum við sýningu Hafnarborgar Lífróður (sjá tengil hér á eftir) heldur Þjóðfræðistofa málþing um hafið í orðræðu og sjálfsmynd Íslendinga. Þar munu fræði- og listamenn koma saman og ræða inntak sýningarinnar ásamt aðstandendum hennar. Þá verður víða leitað fanga og velt upp spurningum bæði um skynjun okkar á ytri veruleika hafsins sem og merkingu þess í hugum fólks og menningarlífi. Umsjón með málþinginu hefur forstöðumaður Þjóðfræðistofu, Kristinn Schram.
 
 

Sjá Dagskrá

 

 

 

Heimsókn frá Edinborgarháskóla og erindi  Katherine M. Campbell: "The John Levy Iceland Collection: Work in Progress"

 

Þann 26. ágúst næstkomandi mun Katherine M. Campbell, lektor í þjóðfræði við Edinborgarháskóla, sækja Þjóðfræðistofu heim á Strandir.   Þar  mun hún segja frá nýhöfnu samstarfsverkefni um hinn mikilvirka safnara John Levy og söfnun hans hér á landi.  Levy safnaði þjóðfræðum og tónlist um allan heim en gríðarlegt safn liggur eftir hann í Edinborgarháskóla.  Söfnun hans og upptökur hér á landi vöktu mikla athygli á sínum tíma og gátu meðal annars af sér útgáfu hljómplatna með íslenskum þjóðlögum og kvæðasöng.  Flutt verða sýnishorn af upptökum Levy. Þar sem margir eru óvanir hinum fagra skoska hreim verður einnig stiklað á stóru á hinu ástkæra ylhýra.

Erindið fer fram á Kaffi Galdri á Hólmavík kl. 20.00.



Sjá nánar um safn John Levy

 

 

 ---------------------

Listamannaverbúð á Ströndum

Stefnumót á Ströndum í tengslum við sýninguna og málþingið Lífróður

 

 

Nú stendur yfir, á vegum Þjóðfræðistofu, "Listamannaverbúð á Ströndum" sem er stefnumót þátttakenda í sýningu Hafnarborgar Lífróður, og málþingi því tengdu, við náttúru og menningu sjávarþorps. Lista- og fræðimenn týnast nú til Hólmavíkur og vinna að listsköpun, hitta kollegga sína og heimamenn og velta fyrir sér grunnhugmyndum sýningarinnar; hvort sem það er ytri veruleika hafsins, t.d. úti á sjó eða inni í beitingarskúr, eða táknmyndir og merking hafsins í hugum fólks. Innan handar verða forstöðumaður Þjóðfræðistofu, Kristinn Schram, samstarfskona hans Katla Kjartansdóttir þjóðfr. og Ásta Þórisdóttir myndlistarm. sem munu hjálpa til við skipulagningu dagsferða og vinnufunda og tengja saman gesti og heimamenn. Verkefnið er styrkt af Menningarráði Vestfjarða.

 

 

Strandhögg - Þjóðfræðistofa þakkar góða þátttöku

 


 

Tíunda landsbyggðarráðstefna Sagnfræðingafélags Íslands og Félags þjóðfræðinga á Íslandi var haldin á Ströndum fyrir réttri viku í samstarfi við Þjóðfræðistofu sem sá um skipulagningu og ReykjavíkurAkademíuna. Yfirskrift ferðarinnar var Strandhögg 2009 og var mæting góð, en um 60 fræðimenn, rithöfundar og listafólk mætti á Strandir til að upplifa herlegheitin með heimamönnum. Ráðstefnan heppnaðist fádæma vel, en hún var með óvenjulegu sniði því fyrirlestrar voru margir haldnir utandyra á vettvangi sem þeir tengdust með einum eða öðrum hætti. Mörg erindin fjölluðu um sögu og menningu Stranda.

Einnig var málþing haldið á Hólmavík, auk þess sem gestir heimsóttu ferðaþjóna og skoðuðu menningarstofnanir á Ströndum. Um leiðsögn í rútuferðinni um sýsluna sáu Matthías Lýðsson, Magnús Rafnsson og Rakel Valgeirsdóttir. Úr hópi heimamanna sem fluttu erindi á Strandhögginu voru þjóðfræðingarnir Jón Jónsson, Kristinn H.M. Schram og Rakel Valgeirsdóttir og sagnfræðingurinn Magnús Rafnsson,

Á hátíðarkvöldverði í Djúpavík voru frumkvöðlar að sameiginlegum landsbyggðarráðstefnum félaga sagnfræðinga og þjóðfræðinga heiðraðir, en fyrsta ráðstefnan var haldin á Ísafirði fyrir 10 árum. Undirbúningsnefndin fyrir fyrstu ráðstefnuna var öll á staðnum, sagnfræðingurinn Sigurður Gylfi Magnússon sem m.a. hefur skrifað um bræður á Ströndum, Strandamaðurinn og þjóðfræðingurinn Jón Jónsson og ísfirsku valkyrjurnar og sagnfræðingarnir Jóna Símonía Bjarnadóttir og Andrea Harðardóttir.

 

            Hafðu samband í netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og síma 8661940